Aðalfundur foreldrafélags Sólborgar verður haldinn þriðjudaginn 8. október 2019 kl. 16:30 í sal leikskólans. Hann er ætlaður öllum foreldrum og forráðamönnum barna leikskólans.
Dagskrá fundarins verður:
1. Kynning skýrslu stjórnar fyrir starfsárið 2018-2019.
2. Kynning og samþykki skýrslu um fjármál félagsins fyrir starfsárið 2018-2019.
3. Kjör stjórnar fyrir starfsárið 2019-2020.
4. Önnur mál.
Fundartími er áætlaður 60 mínútur. Vinsamlegast látið vita ef panta þarf túlkaþjónustu fyrir fundinn.
Foreldrar og forráðamenn er ekki komast á fundinn geta boðið sig fram til stjórnarstarfa með því að senda tölvupóst á netfangið This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 8. október nk.
Allir foreldrar og forráðamenn eru hvattir til þess að sækja fundinn.