Fróðleikur um skyr:
- Það má segja að skyr sé ferskur súrostur sem unninn er úr undanrennu.
Skyr hefur verið gert á Íslandi frá landnámsöld.
Innihald: Undanrenna, skyrgerlar og skyrhleypir
· Mjög næringarríkt, fitulaust, inniheldur B vítamín og með fullt af próteini.
Smá fyrir matarnördana:
Þegar skyr er búið til er undanrenna hituð að suðumarki en með því verður hún nánast gerilsneydd. Undanrennan er næst kæld niður í 37°C og þétti bætt út í (skyr úr fyrri framleiðslu og og í því eru
bæði sýrumyndandi bakteríur og gersveppir). Ostahleypi er líka oft bætt út í svo að skyrið verði þéttara.
Hleypirinn var áður gjarnan fenginn úr kálfsmögum. Að þessu loknu er skyrið látið hlaupa (gerjast og þykkna), sem oftast tekur nokkrar klukkustundir, og síðan er það kælt aftur, skorið í það og það látið standa í sigti svo að mysan renni af (mysa verður s.s. til við framleiðslu skyrs).